
Lesin guðsþjónusta, 15. júní
júní 15 @ 11:00 – 13:00


Velkomin á lesna guðsþjónustu í Friðrikskapellu við Valsheimilið, á Þrenningarhátíð, sunnudaginn 15. júní kl 11:00 í Friðrikskapellu.
Guðsþjónustan er nokkuð einfaldari en venjuleg messa, og er hún í heild sinni lesin af leikmanni frá lestrarpúlti.
Fyrri ritningarlestur: Jes 6:1–8
Árið sem Ússía konungur andaðist sá ég Drottin sitjandi á háum og gnæfandi veldistóli, og slóði skikkju hans fyllti helgidóminn. Umhverfis hann stóðu serafar. Hafði hver þeirra sex vængi. Með tveimur huldu þeir ásjónur sínar, með tveimur huldu þeir fætur sína og með tveimur flugu þeir. Og þeir kölluðu hver til annars og sögðu: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð.“ Við raust þeirra, er þeir kölluðu, skulfu undirstöður þröskuldanna og húsið varð fullt af reyk. Þá sagði ég: „Vei mér, það er úti um mig! Því að ég er maður, sem hefi óhreinar varir og bý meðal fólks, sem hefir óhreinar varir, því að augu mín hafa séð konunginn, Drottin allsherjar.“ Einn serafanna flaug þá til mín. Hann hélt á glóandi koli, sem hann hafði tekið af altarinu með töng, og hann snart munn minn með kolinu og sagði: „Sjá, þetta hefir snortið varir þínar. Misgjörð þín er burt tekin og friðþægt er fyrir synd þína.“ Þá heyrði ég raust Drottins. Hann sagði: „Hvern skal ég senda? Hver vill vera erindreki vor?“ Og ég sagði: „Hér er ég, send þú mig!“
Síðari ritningarlestur: Róm 11:33–36
Hvílíkt djúp ríkdóms, speki og þekkingar Guðs! Hversu órannsakandi dómar hans og órekjandi vegir hans! Hver hefur þekkt huga Drottins?
Eða hver hefur verið ráðgjafi hans? Hver hefur að fyrra bragði gefið honum, svo að það eigi að verða honum endurgoldið? Því að frá honum og fyrir hann og til hans eru allir hlutir. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen.
Guðspjall: Jóh 3:1–15
Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, ráðsherra meðal Gyðinga. Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: „Rabbí, vér vitum, að þú ert lærifaðir kominn frá Guði. Enginn getur gjört þessi tákn, sem þú gjörir, nema Guð sé með honum.“ Jesús svaraði honum: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju.“ Nikódemus segir við hann: „Hvernig getur maður fæðst, þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?“ Jesús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki, nema hann fæðist af vatni og anda. Það sem af holdinu fæðist, er hold, en það sem af andanum fæðist, er andi. Undrast eigi, að ég segi við þig: Yður ber að fæðast að nýju. Vindurinn blæs þar sem hann vill, og þú heyrir þyt hans. Samt veistu ekki, hvaðan hann kemur né hvert hann fer. Svo er um þann, sem af andanum er fæddur.“ Þá spurði Nikódemus: „Hvernig má þetta verða?“ Jesús svaraði honum: „Þú ert lærifaðir í Ísrael og veist ekki þetta? Sannlega, sannlega segi ég þér: Vér tölum um það, sem vér þekkjum, og vitnum um það, sem vér höfum séð, en þér takið ekki á móti vitnisburði vorum. Ef þér trúið eigi, þegar ég ræði við yður jarðnesk efni, hvernig skylduð þér þá trúa, er ég ræði við yður um hin himnesku? Enginn hefur stigið upp til himins, nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn. Og eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn, svo að hver sem trúir hafi eilíft líf í honum.