
Lesin guðsþjónusta, 17. ágúst
ágúst 17 @ 11:00 – 13:00


Velkomin á lesna guðsþjónustu í Friðrikskapellu við Valsheimilið, níunda sunnudag eftir Þrenningarhátíð, sunnudaginn 17. ágúst kl 11:00.
Guðsþjónustan er nokkuð einfaldari en venjuleg messa, og er hún í heild sinni lesin af leikmanni frá lestrarpúlti.
Fyrri ritningarlestur: Orðskviðirnir 2:1–6
Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku
og geymir boðorð mín hjá þér, svo að þú ljáir spekinni athygli þína,
hneigir hjarta þitt að hyggindum, já, ef þú kallar á skynsemina
og hrópar á hyggindin, ef þú leitar að þeim sem að silfri
og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum, þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er,
og öðlast þekking á Guði. Því að Drottinn veitir speki,
af munni hans kemur þekking og hyggindi.
Síðari ritningarlestur: 1 Jóh. 3:19–24
Af þessu munum vér þekkja, að vér erum sannleikans megin og munum geta friðað hjörtu vor frammi fyrir honum, hvað sem hjarta vort kann að dæma oss fyrir. Því að Guð er meiri en hjarta vort og þekkir alla hluti. Þér elskaðir, ef hjartað dæmir oss ekki, þá höfum vér djörfung til Guðs. Og hvað sem vér biðjum um fáum vér hjá honum, af því að vér höldum boðorð hans og gjörum það, sem honum er þóknanlegt. Og þetta er hans boðorð, að vér skulum trúa á nafn sonar hans Jesú Krists og elska hver annan, samkvæmt því sem hann hefur gefið oss boðorð um. Sá sem heldur boðorð Guðs er stöðugur í Guði og Guð í honum. Að hann er stöðugur í oss þekkjum vér af andanum, sem hann hefur gefið oss.
Guðspjall: Lúk 16;1–9
Enn sagði hann við lærisveina sína: „Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann, og var sá sakaður við hann um það, að hann sóaði eigum hans. Hann kallaði hann fyrir sig og sagði við hann: ,Hvað er þetta, er ég heyri um þig? Gjör reikningsskil ráðsmennsku þinnar, því þú getur ekki verið ráðsmaður lengur.’ Ráðsmaðurinn sagði þá við sjálfan sig: ,Hvað á ég að gjöra, fyrst húsbóndi minn sviptir mig ráðsmennskunni? Ekki orka ég að grafa og skömm þykir mér að betla. Nú sé ég, hvað ég gjöri, til þess að menn taki við mér í hús sín, þegar ég verð sviptur ráðsmennskunni.’ Hann kallaði nú á skuldunauta húsbónda síns, hvern og einn. Við þann fyrsta sagði hann: ,Hve mikið skuldar þú húsbónda mínum?’ Hann svaraði: ,Hundrað kvartil viðsmjörs.’ Hann mælti þá við hann: ,Tak skuldabréf þitt, set þig niður og skrifa sem skjótast fimmtíu.’ Síðan sagði hann við annan: ,En hvað skuldar þú?’ Hann svaraði: ,Hundrað tunnur hveitis.’ Og hann sagði honum: ,Tak þú skuldabréf þitt og skrifa áttatíu.’ Og húsbóndinn hrósaði rangláta ráðsmanninum fyrir að hafa breytt kænlega. Því að börn þessa heims eru kænni í skiptum við sína kynslóð en börn ljóssins. Og ég segi yður: Aflið yður vina með hinum rangláta mammón, svo að þeir taki við yður í eilífar tjaldbúðir, þegar honum sleppir.