Skip to content
Loading Events

« All Events

Lesin guðsþjónusta páskadag, 20. apríl kl 14.

apríl 20 @ 14:00 16:00

Velkomin á lesna guðsþjónustu í Friðrikskapellu við Valsheimilið, á páskadag, sunnudaginn 20. apríl kl 14:00 (ATH tímasetning).

Guðsþjónustan er nokkuð einfaldari en venjuleg messa, og er hún í heild sinni lesin af leikmanni frá lestrarpúlti.

Fyrri ritningarlestur: Sálm 118:14–24

Drottinn er styrkur minn og lofsöngur,
og hann varð mér til hjálpræðis.

Fagnaðar- og siguróp
kveður við í tjöldum réttlátra:
Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,
hægri hönd Drottins upphefur,
hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.

Ég mun eigi deyja, heldur lifa
og kunngjöra verk Drottins.

Drottinn hefir hirt mig harðlega,
en eigi ofurselt mig dauðanum.

Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins,
að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.

Þetta er hlið Drottins,
réttlátir menn fara inn um það.

Ég lofa þig, af því að þú bænheyrðir mig
og ert orðinn mér hjálpræði.

Steinninn sem smiðirnir höfnuðu
er orðinn að hyrningarsteini.

Að tilhlutun Drottins er þetta orðið,
það er dásamlegt í augum vorum.

Þetta er dagurinn sem Drottinn hefir gjört,
fögnum, verum glaðir á honum.

Síðari ritningarlestur: 1 Kor 5:7–8

Hreinsið burt gamla súrdeigið, til þess að þér séuð nýtt deig, enda eruð þér ósýrðir. Því að páskalambi voru er slátrað, sem er Kristur. Höldum því hátíð, ekki með gömlu súrdeigi né með súrdeigi illsku og vonsku, heldur með ósýrðum brauðum hreinleikans og sannleikans.

Guðspjall: Mark 16:1–7

Þá er hvíldardagurinn var liðinn, keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir oss steininum frá grafarmunnanum?“ En þegar þær líta upp, sjá þær, að steininum hafði verið velt frá, en hann var mjög stór. Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju og þær skelfdust.

En hann sagði við þær: „Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjá, þarna er staðurinn, þar sem þeir lögðu hann. En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: ,Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann, eins og hann sagði yður’.“

Friðrikskapella

Hlíðarendi 6-10
Reykjavík, 102 Iceland
+ Google Map