Skip to content
Loading Events

« All Events

Messa 2. febrúar

febrúar 2, 2025 @ 11:00 13:00

Velkomin á guðsþjónustu í Friðrikskapellu við Valsheimilið, sunnudaginn 2. febrúar kl 11:00, sem kallast fjórði sunnudagur eftir þrettánda

Fyrri ritningarlestur: Jesaja 40:25–31

Við hvern viljið þér samlíkja mér, að ég sé honum jafn? segir Hinn heilagi. Hefjið upp augu yðar til hæða og litist um: Hver hefir skapað stjörnurnar? Hann, sem leiðir út her þeirra með tölu og kallar þær allar með nafni. Sökum mikilleiks kraftar hans og af því að hann er voldugur að afli verður einskis þeirra vant. Hví segir þú þá svo, Jakobsætt, og hví mælir þú þá svo, Ísrael: „Hagur minn er hulinn fyrir Drottni, og réttur minn er genginn úr höndum Guði mínum?“ Veistu þá ekki? Hefir þú ekki heyrt? Drottinn er eilífur Guð, er skapað hefir endimörk jarðarinnar. Hann þreytist ekki, hann lýist ekki, speki hans er órannsakanleg. Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. Ungir menn þreytast og lýjast, og æskumenn hníga, en þeir, sem vona á Drottin, fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.

Síðari ritnignarlestur: Róm 13:8–10

Skuldið ekki neinum neitt, nema það eitt að elska hver annan, því að sá, sem elskar náunga sinn, hefur uppfyllt lögmálið. Boðorðin: „Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki girnast,“ og hvert annað boðorð er innifalið í þessari grein: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ Kærleikurinn gjörir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins.

Guðspjall: Matt 8:23–27

Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: „Herra, bjarga þú, vér förumst.“ Hann sagði við þá: „Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?“ Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn. Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“

Friðrikskapella

Hlíðarendi 6-10
Reykjavík, 102 Iceland
+ Google Map