
Messa 29. júní
júní 29 @ 11:00 – 13:00


Velkomin á guðsþjónustu í Friðrikskapellu við Valsheimilið, sunnudaginn 29. júní kl 11:00, sem kallast 2. sunnudagur eftir Þrenningarhátíð.
Fyrri ritningarlestur: Jesaja 55:1–5
1 Heyrið, allir þér sem þyrstir eruð, komið hingað til vatnsins, og þér sem ekkert silfur eigið, komið, kaupið korn og etið! Komið, kaupið korn án silfurs og endurgjaldslaust bæði vín og mjólk!
2 Hví reiðið þér silfur fyrir það, sem ekki er brauð, og gróða yðar fyrir það, sem ekki er til saðnings?
Hlýðið á mig, þá skuluð þér fá gott að eta og sálir yðar gæða sér á feiti!3 Hneigið eyru yðar og komið til mín, heyrið, svo að sálir yðar megi lifna við!
Ég vil gjöra við yður eilífan sáttmála, Davíðs órjúfanlega náðarsáttmála.4 Sjá, ég hefi gjört hann að vitni fyrir þjóðirnar, að höfðingja og stjórnara þjóðanna.
5 Sjá, þú munt kalla til þín þjóð, er þú þekkir ekki, og fólk, sem ekki þekkir þig, mun hraða sér til þín, sakir Drottins Guðs þíns og vegna Hins heilaga í Ísrael, af því að hann hefir gjört þig vegsamlegan.
Síðari ritnignarlestur: 1 Jóh 3:13–18
13 Undrist ekki, bræður, þótt heimurinn hati yður. 14 Vér vitum, að vér erum komnir yfir frá dauðanum til lífsins, af því að vér elskum bræður vora. Sá sem ekki elskar er áfram í dauðanum. 15 Hver sem hatar bróður sinn er manndrápari og þér vitið, að enginn manndrápari hefur eilíft líf í sér. 16 Af því þekkjum vér kærleikann, að Jesús lét lífið fyrir oss. Svo eigum vér og að láta lífið fyrir bræðurna. 17 Ef sá, sem hefur heimsins gæði, horfir á bróður sinn vera þurfandi og lýkur aftur hjarta sínu fyrir honum, hvernig getur kærleikur til Guðs verið stöðugur í honum? 18 Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum, heldur í verki og sannleika.
Guðspjall: Lúk 14:16–24
16 Jesús sagði við hann: „Maður nokkur gjörði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum. 17 Er stundin kom, að veislan skyldi vera, sendi hann þjón sinn að segja þeim, er boðnir voru: ,Komið, nú er allt tilbúið.’ 18 En þeir tóku allir að afsaka sig einum munni. Hinn fyrsti sagði við hann: ,Ég hef keypt akur og verð að fara og líta á hann. Ég bið þig, haf mig afsakaðan.’ 19 Annar sagði: ,Ég hef keypt fimm tvenndir akneyta og er á förum að reyna þau. Ég bið þig, haf mig afsakaðan.’ 20 Og enn annar sagði: ,Konu hef ég eignast, ekki get ég komið.’
21 Þjónninn kom og tjáði herra sínum þetta. Þá reiddist húsbóndinn og sagði við þjón sinn: ,Far þú fljótt út á stræti og götur borgarinnar, og leið inn hingað fátæka, örkumla, blinda og halta.’ 22 Og þjónninn sagði: ,Herra, það er gjört, sem þú bauðst, og enn er rúm.’ 23 Þá sagði húsbóndinn við þjóninn: ,Far þú út um brautir og gerði og þrýstu þeim að koma inn, svo að hús mitt fyllist. 24 Því ég segi yður, að enginn þeirra manna, er boðnir voru, mun smakka kvöldmáltíð mína.'“