Skip to content
Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Messa 3. mars

mars 3, 2024 @ 11:00 - 13:00

Velkomin á guðsþjónustu í Friðrikskapellu við Valsheimilið, sunnudaginn 3. mars kl 11:00, sem er 3. sunnudagur í föstu.

2 Sam 22:2-7, 29-33 og 36

2Hann mælti:

Drottinn er bjarg mitt og vígi,
hann er sá sem hjálpar mér.
3 Guð minn er hellubjarg mitt,
þar sem ég leita hælis,
skjöldur minn og horn hjálpræðis míns,
háborg mín og hæli,
frelsari minn, sem frelsar mig frá ofbeldi.
4 Lofaður sé Drottinn, hrópa ég,
og ég frelsast frá óvinum mínum.

5 Brimöldur dauðans umkringdu mig,
elfur glötunarinnar skelfdu mig,
6 snörur Heljar luktu um mig,
möskvar dauðans féllu yfir mig.
7 Í angist minni kallaði ég á Drottin,
og til Guðs míns hrópaði ég.
Í helgidómi sínum heyrði hann raust mína,
óp mitt barst til eyrna honum.

29 Já, þú ert lampi minn, Drottinn,
Guð minn lýsir mér í myrkrinu.
30 Fyrir þína hjálp hleyp ég yfir virkisgrafir,
fyrir hjálp Guðs míns stekk ég yfir borgarveggi.
31 Vegur Guðs er lýtalaus,
orð Drottins er skírt.
Skjöldur er hann öllum þeim, sem leita hælis hjá honum.
32 Því að hver er Guð, nema Drottinn,
og hver er hellubjarg, utan vor Guð?
33 Sá Guð, sem gyrðir mig styrkleika
og gjörir veg minn sléttan.

36 Þú gafst mér skjöld hjálpræðis þíns,
og lítillæti þitt gjörði mig mikinn.

Rom 16:17-20

17Ég áminni yður um, bræður, að hafa gát á þeim, er vekja sundurþykkju og tæla frá þeirri kenningu, sem þér hafið numið. Sneiðið hjá þeim. 18Því að slíkir menn þjóna ekki Drottni vorum Kristi, heldur eigin maga, og með blíðmælum og fagurgala blekkja þeir hjörtu hrekklausra manna. 19Hlýðni yðar er alkunn orðin. Því gleðst ég yfir yður og ég vil, að þér séuð vitrir í því, sem gott er, en einfaldir í því, sem illt er. 20Guð friðarins mun bráðlega sundurmola Satan undir fótum yðar.

Náðin Drottins vors Jesú Krist sé með yður.

Joh 2:13-22

13Nú fóru páskar Gyðinga í hönd, og Jesús hélt upp til Jerúsalem. 14Þar sá hann í helgidóminum þá, er seldu naut, sauði og dúfur, og víxlarana, sem sátu þar. 15Þá gjörði hann sér svipu úr köðlum og rak alla út úr helgidóminum, líka sauðina og nautin. Hann steypti niður peningum víxlaranna og hratt um borðum þeirra, 16og við dúfnasalana sagði hann: „Burt með þetta héðan. Gjörið ekki hús föður míns að sölubúð.“ 17Lærisveinum hans kom í hug, að ritað er: „Vandlæting vegna húss þíns mun tæra mig upp.“

18Gyðingar sögðu þá við hann: „Hvaða tákn getur þú sýnt oss um það, að þú megir gjöra þetta?“

19Jesús svaraði þeim: „Brjótið þetta musteri, og ég skal reisa það á þrem dögum.“

20Þá sögðu Gyðingar: „Þetta musteri hefur verið fjörutíu og sex ár í smíðum, og þú ætlar að reisa það á þrem dögum!“

21En hann var að tala um musteri líkama síns. 22Þegar hann var risinn upp frá dauðum, minntust lærisveinar hans, að hann hafði sagt þetta, og trúðu ritningunni og orðinu, sem Jesús hafði talað.

Details

Date:
mars 3, 2024
Time:
11:00 - 13:00