Loading Events

« All Events

Sumarmót LKNI 3-7. ágúst

3. ágúst 7. ágúst

Hið árlega sumarmót Lútersku kirkjunnar í Noregi og á Íslandi verður haldið í annað sinn á Fangekasa misjonssenter í Aremark í Noregi, dagana 3.-7. ágúst 2026. Mótið hentar fyrir fólk á öllum aldri.

Á dagskrá verður biblíukennsla og guðsþjónustur, máltíðir, samfélag og leikir fyrir smáa og stóra. Einnig verður nógur frjáls tími til að spjalla saman, skreppa í gönguferðir, sund í vatninu, eða hvað annað sem hentar.

Ræðumaður ráðstefnunnar verður dr. Joel Biermann, guðfræðiprófessor við Concordia Seminary í St. Louis (CSL). Biermann er prestssonur frá Nebraska og Michigan. Hann tók B.A. frá Concordia College í Ann Arbor, Michingan árið 1983, og útskrifaðist með M.Div. frá CSL árið 1987. Eftir 11 ár sem sóknarprestur settist hann aftur á skólabekk við sinn gamla guðfræðiskóla, nú sem doktorsnemi. Frá námslokum árið 2002 hefur hann starfað sem prófessor við CSL. Biermann heimsækir og aðstoðar söfnuði í nágreni við skólann, sem og víðar, þegar færi er á. Hann höfundur af fjórum bókum, allar um kristilegt líferni.