Skip to content

Biblíulestur á Zoom

Velkomin á biblíulestur á Zoom fimmtudaginn 16. júní kl 19:00.

Til að tengjast Zoom, er hægt að nota eftirfarandi beinan tengil:

Beinn tengill: https://us02web.zoom.us/j/89214546933..

Eða opna Zoom-forritið og setja inn eftirfarandi upplýsingar:
Meeting ID: 892 1454 6933
Passcode: jelk

Biblíulestur: 1 Mós 2:7-3:24

7Þá myndaði Drottinn Guð manninn af leiri jarðar og blés lífsanda í nasir hans, og þannig varð maðurinn lifandi sál.

8Drottinn Guð plantaði aldingarð í Eden langt austur frá og setti þar manninn, sem hann hafði myndað. 9Og Drottinn Guð lét upp vaxa af jörðinni alls konar tré, sem voru girnileg á að líta og góð að eta af, og lífsins tré í miðjum aldingarðinum og skilningstréð góðs og ills.

10Fljót rann frá Eden til að vökva aldingarðinn, og þaðan kvíslaðist það og varð að fjórum stórám. 11Hin fyrsta heitir Píson; hún fellur um allt landið Havíla, þar sem gullið fæst. 12Og gull lands þess er gott. Þar fæst bedolakharpeis og sjóamsteinar. 13Önnur stóráin heitir Gíhon. Hún fellur um allt Kúsland. 14Þriðja stóráin heitir Kíddekel. Hún fellur fyrir vestan Assýríu. Fjórða stóráin er Efrat.
15Þá tók Drottinn Guð manninn og setti hann í aldingarðinn Eden til að yrkja hann og gæta hans.
16Og Drottinn Guð bauð manninum og sagði: „Af öllum trjám í aldingarðinum máttu eta eftir vild, 17en af skilningstrénu góðs og ills mátt þú ekki eta, því að jafnskjótt og þú etur af því, skalt þú vissulega deyja.“

18Drottinn Guð sagði: „Eigi er það gott, að maðurinn sé einsamall. Ég vil gjöra honum meðhjálp við hans hæfi.“ 19Þá myndaði Drottinn Guð af jörðinni öll dýr merkurinnar og alla fugla loftsins og lét þau koma fyrir manninn til þess að sjá, hvað hann nefndi þau. Og hvert það heiti, sem maðurinn gæfi hinum lifandi skepnum, skyldi vera nafn þeirra. 20Og maðurinn gaf nafn öllum fénaðinum og fuglum loftsins og öllum dýrum merkurinnar. En meðhjálp fyrir mann fann hann enga við sitt hæfi. 21Þá lét Drottinn Guð fastan svefn falla á manninn. Og er hann var sofnaður, tók hann eitt af rifjum hans og fyllti aftur með holdi. 22Og Drottinn Guð myndaði konu af rifinu, er hann hafði tekið úr manninum, og leiddi hana til mannsins.

23Þá sagði maðurinn: „Þetta er loks bein af mínum beinum og hold af mínu holdi. Hún skal karlynja kallast, af því að hún er af karlmanni tekin.“

24Þess vegna yfirgefur maður föður sinn og móður sína og býr við eiginkonu sína, svo að þau verði eitt hold.

25Og þau voru bæði nakin, maðurinn og kona hans, og blygðuðust sín ekki.
Fall mannsins

3

1Höggormurinn var slægari en öll önnur dýr merkurinnar, sem Drottinn Guð hafði gjört. Og hann mælti við konuna: „Er það satt, að Guð hafi sagt: ,Þið megið ekki eta af neinu tré í aldingarðinum’?“

2Þá sagði konan við höggorminn: „Af ávöxtum trjánna í aldingarðinum megum við eta, 3en af ávexti trésins, sem stendur í miðjum aldingarðinum, ,af honum,’ sagði Guð, ,megið þið ekki eta og ekki snerta hann, ella munuð þið deyja.'“

4Þá sagði höggormurinn við konuna: „Vissulega munuð þið ekki deyja! 5En Guð veit, að jafnskjótt sem þið etið af honum, munu augu ykkar upp ljúkast, og þið munuð verða eins og Guð og vita skyn góðs og ills.“

6En er konan sá, að tréð var gott að eta af, fagurt á að líta og girnilegt til fróðleiks, þá tók hún af ávexti þess og át, og hún gaf einnig manni sínum, sem með henni var, og hann át. 7Þá lukust upp augu þeirra beggja, og þau urðu þess vör, að þau voru nakin, og þau festu saman fíkjuviðarblöð og gjörðu sér mittisskýlur.

8En er þau heyrðu til Drottins Guðs, sem var á gangi í aldingarðinum í kveldsvalanum, þá reyndi maðurinn og kona hans að fela sig fyrir Drottni Guði millum trjánna í aldingarðinum.
9Drottinn Guð kallaði á manninn og sagði við hann: „Hvar ertu?“

10Hann svaraði: „Ég heyrði til þín í aldingarðinum og varð hræddur, af því að ég er nakinn, og ég faldi mig.“ 11En hann mælti: „Hver hefir sagt þér, að þú værir nakinn? Hefir þú etið af trénu, sem ég bannaði þér að eta af?“

12Þá svaraði maðurinn: „Konan, sem þú gafst mér til sambúðar, hún gaf mér af trénu, og ég át.“
13Þá sagði Drottinn Guð við konuna: „Hvað hefir þú gjört?“ Og konan svaraði: „Höggormurinn tældi mig, svo að ég át.“

14Þá sagði Drottinn Guð við höggorminn: „Af því að þú gjörðir þetta, skalt þú vera bölvaður meðal alls fénaðarins og allra dýra merkurinnar. Á kviði þínum skalt þú skríða og mold eta alla þína lífdaga. 15Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis. Það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess.“

16En við konuna sagði hann: „Mikla mun ég gjöra þjáningu þína, er þú verður barnshafandi. Með þraut skalt þú börn fæða, og þó hafa löngun til manns þíns, en hann skal drottna yfir þér.“
17Og við manninn sagði hann: „Af því að þú hlýddir röddu konu þinnar og ást af því tré, sem ég bannaði þér, er ég sagði: ,Þú mátt ekki eta af því,’ þá sé jörðin bölvuð þín vegna. Með erfiði skalt þú þig af henni næra alla þína lífdaga. 18Þyrna og þistla skal hún bera þér, og þú skalt eta jurtir merkurinnar. 19Í sveita andlitis þíns skalt þú neyta brauðs þíns, þangað til þú hverfur aftur til jarðarinnar, því að af henni ert þú tekinn. Því að mold ert þú og til moldar skalt þú aftur hverfa!“
20Og maðurinn nefndi konu sína Evu, því að hún varð móðir allra, sem lifa. 21Og Drottinn Guð gjörði manninum og konu hans skinnkyrtla og lét þau klæðast þeim.

22Drottinn Guð sagði: „Sjá, maðurinn er orðinn sem einn af oss, þar sem hann veit skyn góðs og ills. Aðeins að hann rétti nú ekki út hönd sína og taki einnig af lífsins tré og eti, og lifi eilíflega!“
23Þá lét Drottinn Guð hann í burt fara úr aldingarðinum Eden til að yrkja jörðina, sem hann var tekinn af. 24Og hann rak manninn burt og setti kerúbana fyrir austan Edengarð og loga hins sveipanda sverðs til að geyma vegarins að lífsins tré.

Úr fræðunum minni

Fyrsta grein: Um sköpunina

Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.

Hvað er það? Svar: Ég trúi að Guð hafi skapað mig og alla hluti, hafi gefið mér líkama og sál, augu, eyru og alla limi, skynsemi og öll skilningarvit og haldi því enn við; auk þess klæði og skæði, mat og drykk, hús og heimili, maka og börn, akur, fénað og öll gæði; sjái mér ríkulega og daglega fyrir öllum þörfum og fæðslu þessa líkama og lífs; verndi mig gegn allri hættu, og gæti mín og varðveiti mig frá öllu illu; og allt þetta af einskærri, föðurlegri, guðlegri gæsku og miskunn, án allrar minnar verðskuldunar og tilverknaðar. En fyrir allt þetta ber mér skylda til að þakka honum og vegsama hann, þjóna honum og hlýða. Það er vissulega satt.