
Torkild Masvie, lætur af störfum sem biskup Lúthersku kirkjunnar í Noregi og á Íslandi á árinu 2026. Biskup er efsti leiðtogi og fulltrúi kirkjunnar. Meðal starfa hans er að leiða fundi kirkjuráðs, bera ábyrgð á öllum ráðningum kirkjunnar, sem og að vígja hæfa menn til prestsstarfs. Ef nauðsyn krefur, hefur hann yfirumsjón með sáttaferlum í söfnuðum kirkjunnar. Hann hefur yfirumsjón með helgisiðum kirkjunnar, boðun og miðlun sakramentanna. Biskup getur starfað til 70 ára aldurs, þar til hann segir upp störfum eða honum er sagt upp, samkvæmt lögum kirkjunnar.
Kirkuþing, sem haldið verður laugardaginn 14. mars í Osló, kýs biskup af þeim prestum sem hafa verið tilnefndir og samþykkt framboð sitt. Leyfilegt er að tilnefna þá presta kirkjunnar sem hafa aldur til, sem og presta í þeim kirkjum sem við höfum kirkjusamfélag við. Þær kirkjur eru:
- Lutheran Church – Missouri Synod
- American Association of Lutheran Churches
- Lutheran Church Canada
- Evangelical Lutheran Church of Ingria
- Evangelical Lutheran Church of Latvia
- Evangelical Lutheran Church in Lithuania.
Ferlið fram að vígslu
1. – 15. janúar 2026: Tilnefningar
Allir skráðir og virkir meðlimir kirkjunnar hafa rétt til að tilnefna prest til biskups, og hafa til þess fyrstu tvær vikurnar í janúar. Tilnefning fer fram með því að senda tölvupóst á post@lkn.no, með eftirfarandi upplýsingum:
Þitt nafn:
Þitt símanúmer:
Þinn söfnuður:
Prestur sem þú tilnefnir:
Fram að kirkjuþingi, laugardag 14. mars í Osló
Að úrvinnslu lokinni verða frambjóðendur kynntir fyrir kirkjunni. Safnaðarfundir (aðalfundir) hvers safnaðar ræða frambjóðendur og kjósa fulltrúa safnaðarins á kirkjuþing, þar sem biskupskjörið fer fram. Hver söfnuður sendir einn prest og einn leikmann sem fulltrúa. Safnaðarfundir þurfa því að fara fram fyrir lok febrúar. Kirkjan fjármagnar ferðir fulltrúa á kirkjuþing, en fulltrúar geta einnig tekið þátt á fjarfundi ef þess er óskað.
Biskupskjörið fer fram á kirkjuþingi, 14. mars í Osló og krefst 2/3 meirihluta kjósenda. Náist ekki slíkur meirihluti, eru haldnar fleiri umferðir, samkvæmt lögum kirkjunnar, sem er að finna á norskri vefsíðu kirkjunnar.
Vígsla: Helgina 23.-24. október í Osló.
Vígslan fer fram í Osló, laugardaginn 23. október, að viðstöddum öllum prestum kirkjunnar, fulltrúum frá þeim kirkjum sem við erum í kirkjusamfélagi við, og öllum þeim sem óska þess að vera viðstaddir. Nývígður biskup mun prédika í Messíaskirkjunni í Osló sunnudaginn 24. október.
Megi Drottin leiða og blessa kjör nýs biskups.
Vér þökkum þér himneski Faðir, að þú hefur látið fagnaðarerindi þitt hljóma í landi voru, og að þú hefur gefið oss trúa þjóna orðs þíns og sakramenta þinna. Vér þökkum fyrir Torkild biskup, sem nú lætur af störum, og biðjum þig, að þú í náð þinni, leiðir kirkju vora í köllun nýs biskups. Veit honum réttan undirbúining til þessarar þjónustu. Amen.