Skip to content

Guðsþjónusta 11. desember

Velkomin á guðsþjónustu í Friðrikskapellu, sunnudaginn 11. desember kl 11:00, sem er 3. sunnudagur í aðventu.

Fyrri ritningarlestur

Stíg upp á hátt fjall, þú Síon fagnaðarboði! Hef upp raust þína kröftuglega, þú Jerúsalem fagnaðarboði! Hef upp raustina, óttast eigi, seg borgunum í Júda: „Sjá, Guð yðar kemur!“

Sjá, hinn alvaldi Drottinn kemur sem hetja, og armleggur hans aflar honum yfirráða. Sjá, endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum.

Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni til haga, taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu, en leiða mæðurnar.

Jes 40:9-11

Síðari ritningarlestur

Enn þá áreiðanlegra er oss því nú hið spámannlega orð. Og það er rétt af yður að gefa gaum að því eins og ljósi, sem skín á myrkum stað, þangað til dagur ljómar og morgunstjarna rennur upp í hjörtum yðar. Vitið það umfram allt, að enginn þýðir neinn spádóm Ritningarinnar af sjálfum sér. Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns, heldur töluðu menn orð frá Guði, knúðir af heilögum anda.

2 Pet 1:19-21

Guðspjall

Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu, en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus bróðir hans í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, í æðstapreststíð Annasar og Kaífasar, kom orð Guðs til Jóhannesar Sakaríasonar í óbyggðinni. Og hann fór um alla Jórdanbyggð og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda, eins og ritað er í bók Jesaja spámanns:

Rödd hrópanda í eyðimörk:
Greiðið veg Drottins,
gjörið beinar brautir hans. Öll gil skulu fyllast,
öll fell og hálsar lægjast.
Krókar skulu verða beinir
og óvegir sléttar götur. Og allir menn munu sjá hjálpræði Guðs.

Við mannfjöldann, sem fór út til að skírast af honum, sagði hann: „Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði? Berið þá ávexti samboðna iðruninni, og farið ekki að segja með sjálfum yður: ,Vér eigum Abraham að föður.’ Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum. Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.“

Mannfjöldinn spurði hann: „Hvað eigum vér þá að gjöra?“

En hann svaraði þeim: „Sá sem á tvo kyrtla, gefi þeim, er engan á, og eins gjöri sá er matföng hefur.“

Þá komu og tollheimtumenn til að skírast. Þeir sögðu við hann: „Meistari, hvað eigum vér að gjöra?“

En hann sagði við þá: „Heimtið ekki meira en fyrir yður er lagt.“

Hermenn spurðu hann einnig: „En hvað eigum vér að gjöra?“

Hann sagði við þá: „Hafið ekki fé af neinum, hvorki með ofríki né svikum. Látið yður nægja mála yðar.“

Nú var eftirvænting vakin hjá lýðnum, og allir voru að hugsa með sjálfum sér, hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. En Jóhannes svaraði öllum og sagði: „Ég skíri yður með vatni, en sá kemur, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi. Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gjörhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína, en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi.“

Með mörgu öðru áminnti hann og flutti lýðnum fagnaðarboðin.

Luk 3:1-18