Skip to content

Huggið lýð minn

Fyrri ritningarlestur: Jes 40:1-8

1Huggið, huggið lýð minn! segir Guð yðar.

2Hughreystið Jerúsalem og boðið henni, að áþján hennar sé á enda, að sekt hennar sé goldin, að hún hafi fengið tvöfalt af hendi Drottins fyrir allar syndir sínar!

3Heyr, kallað er:

„Greiðið götu Drottins í eyðimörkinni, ryðjið Guði vorum veg í óbyggðinni!

4Sérhver dalur skal hækka, hvert fjall og háls lækka. Hólarnir skulu verða að jafnsléttu og hamrarnir að dalagrundum!

5Dýrð Drottins mun birtast, og allt hold mun sjá það, því að munnur Drottins hefir talað það!“

6Heyr, einhver segir:

„Kalla þú!“

Og ég svara: „Hvað skal ég kalla?“

„Allt hold er gras og allur yndisleikur þess sem blóm vallarins. 7Grasið visnar, blómin fölna, þegar Drottinn andar á þau. Sannlega, mennirnir eru gras.

8Grasið visnar, blómin fölna, en orð Guðs vors stendur stöðugt eilíflega.“

Síðari ritningarlestur: 1 Kor 4:1-5

1Þannig líti menn á oss svo sem þjóna Krists og ráðsmenn yfir leyndardómum Guðs. 2Nú er þess krafist af ráðsmönnum, að sérhver reynist trúr. 3En mér er það fyrir minnstu að verða dæmdur af yður eða af mannlegu dómþingi. Ég dæmi mig ekki einu sinni sjálfur. 4Ég er mér ekki neins ills meðvitandi, en með því er ég þó ekki sýknaður. Drottinn er sá sem dæmir mig. 5Dæmið því ekki fyrir tímann, áður en Drottinn kemur. Hann mun leiða það í ljós, sem í myrkrinu er hulið, og opinbera ráð hjartnanna. Og þá mun hver um sig hljóta þann lofstír af Guði, sem hann á skilið.

Guðspjall: Matt 11:2-10

2Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði: 3„Ert þú sá, sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?“

4Jesús svaraði þeim: „Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið: 5Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp, og fátækum er flutt fagnaðarerindi. 6Og sæll er sá, sem hneykslast ekki á mér.“

Meira en spámaður

7Þegar þeir voru farnir, tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: „Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn? 8Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að finna í sölum konunga. 9Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann. 10Hann er sá, sem um er ritað:

Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér,
er greiða mun veg þinn fyrir þér.