Skip to content

Guðsþjónusta 24. október

Friðrikskapella

Við boðum til guðsþjónustu í Friðrikskapellu sunnudaginn 24. október kl 11:00.

Sakarías Ingólfsson, prestur JELK, prédikar.

Guðspjall þessa 21. sunnudags eftir Þrenningarhátíð skrifar guðspjallamaðurinn Lúkas

1Þá sagði hann þeim dæmisögu um það, hvernig þeir skyldu stöðugt biðja og eigi þreytast: 2″Í borg einni var dómari, sem hvorki óttaðist Guð né skeytti um nokkurn mann. 3Í sömu borg var ekkja, sem kom einlægt til hans og sagði: ,Lát þú mig ná rétti á mótstöðumanni mínum.’ 4Það vildi hann ekki lengi vel. En að lokum sagði hann við sjálfan sig: ,Ekki óttast ég Guð að sönnu né skeyti um nokkurn mann. 5En þessi ekkja lætur mig aldrei í friði. Því vil ég rétta hlut hennar, áður en hún gjörir út af við mig með nauði sínu.'“
6Og Drottinn mælti: „Heyrið, hvað rangláti dómarinn segir. 7Mun Guð þá ekki rétta hlut sinna útvöldu, sem hrópa til hans dag og nótt? Mun hann draga að hjálpa þeim? 8Ég segi yður: Hann mun skjótt rétta hlut þeirra. En mun Mannssonurinn finna trúna á jörðu, þegar hann kemur?“
Farísei og tollheimtumaður

Lúk 18:1-8

Allir sem taka þátt í guðsþjónustunni hjálpast að við sóttvarnir, m.a. með því að gæta að nálægðarmörkum. Þáttaka verður skráð samkvæmt gildandi takmörkun á samkomum (Nánar á covid.is)

Verið velkomin.