Velkomin á guðsþjónustu í Friðrikskapellu, sunnudaginn 6. júní kl 11:00, sem er Þrenningarhátíð.
Prédikað verður yfir fyrri ritningarlestri.
Fyrri ritningarlestur: Jes 6:1-8
1Árið sem Ússía konungur andaðist sá ég Drottin sitjandi á háum og gnæfandi veldistóli, og slóði skikkju hans fyllti helgidóminn. 2Umhverfis hann stóðu serafar. Hafði hver þeirra sex vængi. Með tveimur huldu þeir ásjónur sínar, með tveimur huldu þeir fætur sína og með tveimur flugu þeir. 3Og þeir kölluðu hver til annars og sögðu:
„Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð.“
4Við raust þeirra, er þeir kölluðu, skulfu undirstöður þröskuldanna og húsið varð fullt af reyk.
5Þá sagði ég: „Vei mér, það er úti um mig! Því að ég er maður, sem hefi óhreinar varir og bý meðal fólks, sem hefir óhreinar varir, því að augu mín hafa séð konunginn, Drottin allsherjar.“
6Einn serafanna flaug þá til mín. Hann hélt á glóandi koli, sem hann hafði tekið af altarinu með töng, 7og hann snart munn minn með kolinu og sagði: „Sjá, þetta hefir snortið varir þínar. Misgjörð þín er burt tekin og friðþægt er fyrir synd þína.“
8Þá heyrði ég raust Drottins. Hann sagði: „Hvern skal ég senda? Hver vill vera erindreki vor?“
Og ég sagði: „Hér er ég, send þú mig!“
Síðari ritningarlestur: Róm 11:33-36
33Hvílíkt djúp ríkdóms, speki og þekkingar Guðs! Hversu órannsakandi dómar hans og órekjandi vegir hans!
34 Hver hefur þekkt huga Drottins?
Eða hver hefur verið ráðgjafi hans?
35 Hver hefur að fyrra bragði gefið
honum,
svo að það eigi að verða honum endurgoldið?36Því að frá honum og fyrir hann og til hans eru allir hlutir. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen.
Guðspjall: Jóh 3:1-15
1Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, ráðsherra meðal Gyðinga. 2Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: „Rabbí, vér vitum, að þú ert lærifaðir kominn frá Guði. Enginn getur gjört þessi tákn, sem þú gjörir, nema Guð sé með honum.“
3Jesús svaraði honum: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju.“
4Nikódemus segir við hann: „Hvernig getur maður fæðst, þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?“
5Jesús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki, nema hann fæðist af vatni og anda. 6Það sem af holdinu fæðist, er hold, en það sem af andanum fæðist, er andi. 7Undrast eigi, að ég segi við þig: Yður ber að fæðast að nýju. 8Vindurinn blæs þar sem hann vill, og þú heyrir þyt hans. Samt veistu ekki, hvaðan hann kemur né hvert hann fer. Svo er um þann, sem af andanum er fæddur.“
9Þá spurði Nikódemus: „Hvernig má þetta verða?“
10Jesús svaraði honum: „Þú ert lærifaðir í Ísrael og veist ekki þetta? 11Sannlega, sannlega segi ég þér: Vér tölum um það, sem vér þekkjum, og vitnum um það, sem vér höfum séð, en þér takið ekki á móti vitnisburði vorum. 12Ef þér trúið eigi, þegar ég ræði við yður jarðnesk efni, hvernig skylduð þér þá trúa, er ég ræði við yður um hin himnesku? 13Enginn hefur stigið upp til himins, nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn.
14Og eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn, 15svo að hver sem trúir hafi eilíft líf í honum.