
Í desember og janúar verður haldið stutt trúfræðslunámskeið, þar sem við förum yfir meginatriði kristinnar trúar. Námskeiðið hentar fyrir þá sem vilja fá yfirlit yfir helstu atriði trúarinnar, og hentar einnig sem undirbúningur fyrir þá sem vilja skírast, eða þá sem vilja verða félagsmenn JELK. Námskeiðið er þáttakendum að kostnaðarlausu.
Þeir sem hafa áhuga, hafið samband við safnaðarprest í síma 839 3993 eða á tölvupósti sakarias.ingolfsson@lkn.no. Skráningarfrestur er fimmtudagur 4. desember.
Föstudagskvöld 5. des kl 19:00
Í heimahúsi
Biblían og upphaf hennar.
Miðvikudagskvöld 17. desember, kl 20:00
Á Zoom
Um Guð (Boðorð 1-3 og Trúarjátningin)
Föstudagskvöld 2. janúar kl 19:00
Í heimahúsi
Um sköpunina, lögmál Guðs, Kristilegt líferni og skriftir (Boðorð 4-6 og Trúarjátningin)
Miðvikudagskvöld 7. janúar, kl 20:00
Á Zoom
Guðsþjónusta, bæn og áfram um kristilegt líferni
Miðvikudagskvöld 22. janúar, kl 20:00
Á Zoom
Um Skírnina
Föstudagskvöld 30. janúar
Í heimahúsi
Um altarissakramentið