Skip to content

Ferming

Helgisiðir til reynslu.
Fermt er í almennri messu, fyrir þakkarfórn og máltíð Drottins:

Ávarp

Prestur snýr sér til safnaðarins

P: Kæru fermingarbörn! Þið eruð skírð í nafni Föður, Sonar og Heilags Anda, og hafið fengið uppfræðslu í kristilegu hugarfari og líferni. Vér biðjum með ykkur, að Guð veiti ykkur styrk til að lifa og sigra undir merki hans. Hafið alla ævi frelsarann Jesú Krist fyrir augunum og minnist orða hans: „Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum.“ (Mt 10:32)

Útskýringar

Í lok Matteusarguðspjalss segir Jesús við postula sína: „Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður.“ (Matt 28:19–20).

Skírninnni fylgir sú ábyrgð að barninu eða skírnarþega sé veitt uppfræðsla í kristilegri trú og líferni. Hluti af þeirri uppfræðslu á sér stað í fermingarundirbúningi. Þá er fermingin sjálf tilefni fyrir barnið til að játa opinberlega trú sína á þann Guð Föður, Son og Heilagan Anda, sem barnið er skírt til.

Fermingin

Fermingarbörnin ganga upp að altarinu í þeirri röð sem áður hefur verið ákveðin. Prestur ávarpar og spyr hvert barn með þessum orðum. Um leið rísa foreldrar og skírnarvottar úr sætum:

P: NN, afneitar þú djöflinum?

Fermingarbarn: Já, ég afneita djöflinum og öllum hans verkum og öllu hans athæfi.

P: Trúir þú á Guð Föður?

Fermingarbarn: Já, Ég trúi á Guð, Föður, almáttugan, skapara himins og jarðar.

P: Trúir þú á Guðs Son, Jesú Krist?

Fermingarbarn: Já, Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af Heilögum Anda, fæddur af Maríu mey, píndur undir Pontíusi Pílatusi, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs Föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.

P: Trúir þú á Guð, Heilagan Anda?

Fermingarbarn: Já, Ég trúi á Heilagan Anda, heilaga, almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu holdsins og eilíft líf.

P: Vilt þú, fyrir náð og hjálp Guðs, standa stöðugur í skírnarsáttmála þínum, og vera trúr allt til dauða? Þá svara: Já, með Guðs hjálp. (Opb. 2:10)

Fermingarbarn: Já, með Guðs hjálp.

[P: Vilt þú taka þátt í því starfi sem Guð, af náð sinni, hefur falið söfnuði sínum með bæn þinni, tíma, hæfileikum og fjármunum? Þá svara: Já, með Guðs hjálp.

Fermingarbarn: Já, með Guðs hjálp.]

P: Réttu mér þá hönd þína, því til staðfestingar.

Prestur og fermingarbarn takast í hendur. Því næst krýpur fermingarbarnið við gráðurnar.

Prestur leggur hönd á höfuð og mælir:

P: Almáttugi Guð, himneski Faðir, þú sem vatni skírnarinnar frelsaðir NN frá valdi myrkursins og fluttir hann inn í ríki þíns elskaða sonar, vernda og leið hann með þínum Heilaga Anda þar til hann nær takmarki trúar sinnar, sem er frelsun sálarinnar. (Kól 1:13, 1 Pét 1:9)

Hér getur presturinn ávarpað barnið með ritningarversi eða látið það fara með vers sem það hefur valið sér.

P: Friður sé með þér.

Fermingarbarn: Amen.

Útskýringar

Fermingarbarninu er gefið tilefni til að játa trú sína með sömu orðum og hljóðuðu við skírnina. Að kannast opinberlega við Krist og játa trúna á hann, er miðlægt atriði í Kristinni trú, sbr. orð Jesú: „Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum.“ (Matt 10:32)

Því næst lofar fermingarbarnið því að standa stöðgut í þessri trú allt til æviloka. Hægt er að hafa með sérstakt fyrirheit fyrir þau fermingarbörn sem ganga í söfnuðinn við fermingu.

Fermingarræða

Prestur flytur stutta ræðu til hvatningar fyrir fermingarbörnin

Fyrirbæn

P: Biðjum saman fyrir NN/fermingarbörnunum.

Prestur snýr sér að altarinu:

P: Gæskuríki, almáttugi Guð, faðir Drottins vors Jesú Krists!

Þú sem með þínum Heilaga Anda, byrjar og fullkomnar hið góða verk í okkur: Við þökkum þér að þú hefur tekið NN/þessi fermingarbörn að þér, og gert þau að þínum börnum í heilagri skírn, og veitt þeim þrá til að lifa í samfélagi með þér og með syni sínum Jesú Kristi.

Við þökkum þér fyrir þá játningu sem þau hafa borið fram í dag, til vitnisburðar um þá þekkingu og dómgreind sem þú hefur gefið þeim, og sömuleiðis fyrir loforð þeirra um að standa stöðug í trúnni á þig, allt til dauða. (Fil 1:6, 9)

Gef þeim æ dýpri þekkingu á hjálpræðinu sem þú hefur fyrirbúið í þínum eingetna syni, og á því líferni sem þú ætlar þeim í þessum synduga heimi. Leið þau og styrk þau með þínum Heilaga Anda, og veit þeim hugrekki til að standast allar þær freistingar sem þau mæta á leið sinni, og að lifa heilögu lífi í þjónustu við náungann, þér til dýrðar.

Ver hjá þeim í nauðum og hrellingum. Hugga þau í sorgum og baráttu trúarinnar. Hjálpa þeim til að vaka og biðja, sækja samfélag trúaðra, halda sér að orði þínu og heilagri kvöldmáltíð, svo að þau megi vaxa og þroskast sem lifandi grein á vínviðnum, Jesú Kristi.

A: Amen.

Hvatning til safnaðarins

Prestur snýr sér að söfnuðinum:

P: Kæri söfnuður. Þessi fermdu ungmenni eru oss á hendur falin. Bjóðum þau velkomin og tökum með gleði móti þeim sem játendum Jesú Krists. Hjálpum þeim að leita Guðs í bæninni, í Orðinu og í Máltíð Drottins. Vörumst að hneyksla þau, hafa illt fyrir þeim eða leiða þau afvega á nokkurn hátt, en ástundum með orðum og eftirdæmi að halda þeim á hinum góða vegi, sem liggur til eilífs lífs.