Breytilegir liðir kirkjuársins
Proprium
Lestrarraðir fylgja lestrarröðum Þjóðkirkjunnar, en einnig eru teknar fram fornar textaraðir kirkjunnar.
Kollektur eru hinar sögulegu kollektur kirkjunnar, færðar í örlítið núnímanlegri búning.
Introitus og pallasöngur fylgir að mestu Messubók Sigurðar Pálssonar, sem sjálf fylgir fyrirmælum í Grallaranum. Textar eru heimfærðir að Biblíuþýðingunni 1981.
Meðal heimilda eru:
Guðbrandur Þorláksson, Graduale: Ein Almenneleg Messusöngs Bók Hólar. 1594; Endurprentun í Reykjavík: Flateyjarútgáfan, 1976.
Handbók Íslensku Kirkjunnar, Reykjavík: Kirkjuráð hinnar íslensku þjóðkirkju, 1981
Handbók presta, innihaldandi Guðspjøll og Pistla, með tilheyrandi kollektum og bænum, sem í Islands kirkjum lesast árið um kring á sunnu- og helgi-dögum. Reykjavík: Prentsmiðja Íslands, 1852
Niels Jesperssøn, Gradval: En almindelig Sangbog, Kiøbenhavn: Laurentz Benedicht forlag, 1573.
Petrus Palladius, Ein kristilig HANDBOG Marteinn Einarsson (þýð.) Kaupmannahöfn 1555; Í: Sálmabækur 16. aldar, bindi I, Reykjavík: Hið Íslenska Bókmenntafélag, 2023
Petrus Palladius, Søndagers Oc hellige dagers Episteler oc Euangelia met Collecter / oc andet at bruge udi Christi Naduere effter Ordinanzens lydelse. Meydeborgk [sic.]: Hans Walter, 1556.
Sigurður Pálsson, Messubók fyrir Presta og Söfnuði, Útgáfa: Kristján Jóh. Kristjánsson og Síra Sigmar I. Torfason, 1961.
Efnisyfirlit
AÐVENTA
Introitus
Styttri introitus sem nota má alla aðventuna.
L: Sjá konungur þinn kemur til þín
A: Greiðið veg Drottins, gerið beinar brautir hans
L: Sjá, hann stendur við dyrnar og knýr á
A: Blessaður sé konungurinn, sem kemur í nafni Drottins

Fyrsti sunnudagur í aðventu
Skrúði fjólublár
Introitus – Inngöngusálmur
L: Til þín, Drottinn, hef ég sál mína, Guð minn, þér treysti ég. (Sálm 25:2)
A: Lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér. (Sálm 25:2)
L: Hver sem á þig vonar, mun eigi verða til skammar (Sálm 25:3)
A: Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína. (Sálm 25:4)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
L: Hver sem á þig vonar, mun eigi verða til skammar (Sálm 25:3)
Kollekta – Bæn dagsins
Drottinn Guð, vér biðjum þig auðmjúklega: Vek upp mátt þinn og kom til vor, að vér meigum, fyrir þína vernd, frelsast frá þeim háska sem yfir oss vofir vegna synda vorra, og fyrir þína hlífð verða sáluhólpin; Þú sem lifir og ríkir með Syni og Heilögum Anda, sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
Róm 13:11-14;
Matt 21:1-9
A:
Jesaja 62:10-12;
Róm 13:11-14;
Matt 21:1-11
B:
C:
Graduale – Pallasöngur
L: Hver sem á þig vonar, mun eigi verða til skammar (Sálm 25:3)
A: Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína. (Sálm 25:4)
A: Hallelúja, hallelúja!
L: Lát oss, Drottinn, sjá miskunn þína
A: og veit oss hjálpræði þitt! (Sálm 85:8)
A: Hallelúja!
JÓL
SUNNUDAGAR EFTIR ÞRETTÁNDA
EPIFANÍA
NÍUVIKNAFASTA
FORFASTA
FASTA
PÁSKAR
HVÍTASUNNA
PENTAKONTA
ÞRENNINGARHÁTÍÐ
TRINITATIS
SUNNUDAGAR EFTIR ÞRENNINGARHÁTÍÐ
Sunnudagar fram að Aðventu eru tölusettir sunnudagar eftir Þrenningarhátið (Trinitatis). Í sumum hefðum eru sunnudagar tölusettir frá hvítasunnu. Fyrsti sunnudagur eftir Þrenningarhátíð, nefnist því einnig annar sunnudagur eftir Hvítasunnu. Þessi talning er höfð með hér að neðan í skýringu við hvern sunnudag.
Introitus
Styttri introitus sem nota má alla sunnudaga eftir Þrenningarhátíð.
L:
A:
L:
A:
Prefasía
P: Sannarlega er það verðugt og rétt, skyldugt og mjög hjálpsamlegt að vér alla daga og á öllum stöðum lofum þig og þökkum þér, þú heilagi Drottinn, almáttugi Faðir og eilífi Guð, fyrir Jesú Krist, Drottin vorn, Hann, sem er ljómi þinnar dýrðar og ímynd þinnar veru, fyrir hvern þú hefur heimana gjört og allt ber með orði máttar síns. Hann er hið eina sanna páskalamb, sem fyrir oss var á krossinum fórnfært, og hefur burt tekið allar heimsins syndir. Hann hefir með sínum dauða vorn dauða sigrað, og með sinni upprisu lífið endurnýjað. Þess vegna, með englum og höfuðenglum, með tignum og drottinvöldum, sömuleiðis ásamt öllum himneskum hersveitum lofum vér þitt heilaga nafn, óaflátanlega syngjandi:

7. Sunnudagur eftir Þrenningarhátíð
Eða 8. Sunnudagur eftir Hvítasunnu
Skrúði grænn
Introitus – Inngöngusálmur
L: Klappið saman lófum, allar þjóðir,
A: fagnið fyrir Guði með gleðiópi. (Sálm 47:2)
L: Því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur,
A: voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni (Sálm 47:2-3)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
L: Klappið saman lófum, allar þjóðir,
A: fagnið fyrir Guði með gleðiópi. (Sálm 47:2)
Kollekta – Bæn dagsins
Ó Drottinn Guð, þú sem aldrei bregst í ráðum fyrirhyggju þinnar, vér biðjum þig auðmjúklega: Tak frá oss allt það, sem oss má að meini verða og veit oss alla þá hluti, sem oss eru gagnlegir til lífs og sálar. Fyrir Drottinn vorn Jesú Krist, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
Róm 6:19-23;
Mark 8:8-9
A:
Sálm 147:1-12 (Sálm 145:15-19)
Róm 6:19-23 (2 Kor 9:8-12;)
Mark 8:1-9
B:
Jóel 2:21-27 (Jóel 2:21-24)
Post 27:20-35 (Post 2:41-47)
Matt 10:24-31 (Jóh 6:30-35)
C:
2 Móś 6:2-7 (Amos 8:11-12)
Post 27:33-36 (Heb 13:1-6)
Matt 16:5-12
Graduale – Pallasöngur
L: Komið, börn, hlýðið á mig,
A: ég vil kenna yður ótta Drottins. (Sálm 34:12)
L: Lítið til hans og gleðjist,
A: og andlit yðar skulu eigi blygðast. (Sálm 34:6)
A: Hallelúja, hallelúja!
L: Klappið saman lófum, allar þjóðir,
A: fagnið fyrir Guði með gleðiópi. (Sálm 47:2)
A: Hallelúja!

8. Sunnudagur eftir Þrenningarhátíð
Eða 9. Sunnudagur eftir Hvítasunnu
Skrúði grænn
Introitus – Inngöngusálmur
L: Guð, vér ígrundum elsku þína inni í musteri þínu.
A: Eins og nafn þitt, Guð, svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis. (Sálm 48:10-11)
L: Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur
A: í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli. (Sálm 48:2)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
L: Guð, vér ígrundum elsku þína inni í musteri þínu.
A: Eins og nafn þitt, Guð, svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis. (Sálm 48:10-11)
Kollekta – Bæn dagsins
Drottinn Guð, himneski Faðir, við biðjum þig: Veit oss viljugan anda og náð, til að hugsa og gjöra þá hluti, sem réttir eru, svo að vér, sem ekki getum án þín verið, megum lifa samkvæmt þínum vilja.
Fyrir Drottinn vorn Jesú Krist, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
Róm 8:12-17
Matt 7:15-23
A:
Jer 23:16-18;20-21 (Jer 23:16-23)
Róm 8:12-17
Matt 7:15-23
B:
Jes 26:1-7
Post 16:25-34 (1 Jóh 4:1-6)
Matt 7:24-29
C:
Sálm 26:1-6 (Jes 2:1-5)
2 Kor 4:5-6 (2 Kor 4:5-7)
Matt 7:12-14
Graduale – Pallasöngur
L:Ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar. (Sálm 31:3b)
A: Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. (Sálm 71:1)
A: Hallelúja, hallelúja!
L: Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon, og við þig séu heitin efnd. (Sálm 65:2)
A: að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns (Sálm 65:5b)
A: Hallelúja!

9. Sunnudagur eftir Þrenningarhátíð
Eða 10. Sunnudagur eftir Hvítasunnu
Skrúði grænn
Introitus – Inngöngusálmur
L: Sjá, Guð er mér hjálpari, það er Drottinn er styður mig.
A: Hið illa mun fjandmönnum mínum í koll koma, lát þá hverfa af trúfesti þinni. (Sálm 54:6-7)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
L: Sjá, Guð er mér hjálpari, það er Drottinn er styður mig.
A: Hið illa mun fjandmönnum mínum í koll koma, lát þá hverfa af trúfesti þinni. (Sálm 54:6-7)
Kollekta – Bæn dagsins
Almáttugi, eilífi Guð: Lát eyru miskunnar þinnar ætið vera opin við auðmjúkum bænum vorum. Og þannig að oss veitist það sem vér girnumst, gef oss þá þína náð til að girnast það eitt, sem þér þóknast.
Fyrir Drottinn vorn Jesú Krist, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
1 Kor 12:1-11
Lúk 19:41-48
A:
Amos 8:4-7 (Orðskv 2:1-6)
1 Jóh 3:19-24
Lúk 16:1-9
B:
Orðskv. 2:1-8 (Jer 1:4-10)
2 Tím 4:5-8 (Efes 5:8b-14)
Lúk 12:32-48 (Lúk 12:42-48)
C:
Amos 5:14-15 (Amos 8:4-7)
1. Tím 1:12-17 (Efes 5:8b-14)
Lúk 16:10-17 (Lúk 16:10-13)
Graduale – Pallasöngur
L: Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!
A: Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn. (Sálm 8:2)
A: Hallelúja, hallelúja!
L: Hlýð þú, lýður minn, á kenning mína,
A: hneigið eyrun að orðum munns míns (Sálm 78:1)
A: Hallelúja!

10. Sunnudagur eftir Þrenningarhátíð
Eða 11. Sunnudagur eftir Hvítasunnu
Skrúði grænn
Introitus – Inngöngusálmur
L: Ég hrópa til Guðs,.. og hann heyrir raust mína.
Hann endurleysir sál mína og gefur mér frið. (Sálm 55:17a, 18b, 19a)
A:Guð mun heyra, og… lægja þá. (Sálm 55:20a)
L: Hlýð, ó Guð, á bæn mína,
A: fel þig eigi fyrir grátbeiðni minni. (Sálm 55:2)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
L: Ég hrópa til Guðs,.. og hann heyrir raust mína.
Hann endurleysir sál mína og gefur mér frið. (Sálm 55:17a, 18b, 19a)
A:Guð mun heyra, og… lægja þá. (Sálm 55:20a)
Kollekta – Bæn dagsins
Almáttugi, eilífi Guð, þú sem auðsýnir mátt þinn þitt með því að þyrma og miskunna oss. Vér biðjum þig: Auk og margfalda við oss miskunn þína, svo að vér sem treystum á fyrirheit þín, meigum hlutdeild fá i himneskri blessun þinni.
Fyrir Son þinn, Jesú Krist, Drottinn vorn, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, einn sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
1 Kor 12:1-11
Lúk 19:41-48
A:
Jer 18:1-10
1 Kor 12:4-11 (Róm 9, 1-15)
Lúk 19, 41-48
B:
Jes 5:1-7
Post 13:44-49 (Róm 9:6-9 og 14-18)
Matt 11:16-24
C:
Sálm 81:9-14 (Harm 5:1 og 11-22)
Heb 3:12-14 (Róm 11:25-32)
Jóh 6:66-69 (Jóh 4:19-26)
Graduale – Pallasöngur
L: Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna (Sálm 17:8)
A:Lát rétt minn út ganga frá augliti þínu, augu þín sjá hvað rétt er. (Sálm 17:2)
A: Hallelúja, hallelúja!
L:Fagnið fyrir Guði, styrkleika vorum, látið gleðióp gjalla Guði Jakobs.
A: Hefjið lofsöng og berjið bumbur, knýið hinar hugljúfu gígjur og hörpur. (Sálm 81:2-3)
A: Hallelúja!

11. Sunnudagur eftir Þrenningarhátíð
Eða 12. Sunnudagur eftir Hvítasunnu
Skrúði grænn
Introitus – Inngöngusálmur
L: Guð, í sínum heilaga búðstað,.. lætur hina einmana hverfa heim aftur, (Sálm 68:6b-7a)
A: hann leiðir hina fjötruðu út til hamingju. (Sálm 68:7b)
L: Guð rís upp, óvinir hans tvístrast,
A: þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans. (Sálm 68:2)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
L: Guð, í sínum heilaga búðstað,.. lætur hina einmana hverfa heim aftur, (Sálm 68:6b-7a)
A: hann leiðir hina fjötruðu út til hamingju. (Sálm 68:7b)
Kollekta – Bæn dagsins
Almáttugur Guð, sem í auðlegð miskunnar þinna, yfirstígur bæði verðleika vorn og bænir. Miskunna oss, og fyrirgef oss það, sem hrellir samvisku vora, og gjör betur við oss en vér þorum að vona. Fyrir Son þinn, Jesú Krist, Drottinn vorn, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, einn sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
1 Kor 15:1-10
Lúk 18:9-14
A 1981:
Jes 2:11-17
1 Kor 15:1-10
Lúk 18:9-14
A endurskoðuð:
2 Sam 12:1-10, 13-15
Róm 3:21-26
Lúk 18:9-14
B 1981:
Sálm 23
1 Jóh 1:5-10
Lúk 7:36-50
B endurskoðuð:
Sálm 32:1-7(11)
1 Jóh 1:5-10
Lúk 7:36-50
C 1981:
Mal 2:4-7
Róm 6:12-14
Matt 23:1-12
C endurskoðuð:
Mal 2:4-7
Róm 6:12-14
Matt 23:1-12
Graduale – Pallasöngur
L: Drottinn er vígi mitt og skjöldur,.. því fagnar hjarta mitt, og með ljóðum mínum lofa ég hann. (Sálm 28:7)
A: Til þín, Drottinn, hrópa ég, þú bjarg mitt, ver eigi hljóður gagnvart mér… Heyr þú á grátbeiðni mína (Sálm 28:1-2)
A: Hallelúja, hallelúja!
L: Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga,
A: um nætur hrópa ég frammi fyrir þér. (Sálm 88:2)
A: Hallelúja!

12. Sunnudagur eftir Þrenningarhátíð
Eða 13. Sunnudagur eftir Hvítasunnu
Skrúði grænn
Introitus – Inngöngusálmur
Í Grallaranum er sungið úr sálmi 39 í inngöngusálmi, og sálmi 90 í pallasöng. Í Messubók Sigurðar Pálssonar eru sálmar 34 og 90 nýttir sem pallasöngur, og Sálmi 70 bætt inn sem inngöngusálmi.
L: Guð, lát þér þóknast að frelsa mig,
A: Drottinn, skunda mér til hjálpar. (Sálm 70:2)
L: Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt,
A: lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu (Sálm 70:3)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
L: Guð, lát þér þóknast að frelsa mig,
A: Drottinn, skunda mér til hjálpar. (Sálm 70:2)
Kollekta – Bæn dagsins
Almáttugi, miskunnsami Guð, það er fyrir gjafir þínar að vér megnum veita þér verðuga og lofsamlega þónustu. Vér biðjum: Veit að vér meigum hraða oss að þínum fyrirheitum, án þess að hrasa. Fyrir Son þinn, Jesú Krist, Drottinn vorn, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, einn sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
2 Kor 3:4–9
Mark 7:31–37
A 1981:
1 Sam 3:1-10
2 Kor 3:4-9
Mark 7:37-37
A endurskoðuð:
Jes 29:17-24
2. Kor 3:4-9
Mark 7:31-37
B 1981:
Sálm 40:2-6
Jak 3:8-18
Matt 12:31-37
B endurskoðuð:
Sálm 40:2-6
Jak 3:8-12
Matt 12:31-37
C 1981:
Sálm 86:9-13:15
Kól 4:2-6
Matt 5:33-37
C endurskoðuð:
Sálm 86:9-13:15
Post 9:1-20
Mark 8:22-27
Graduale – Pallasöngur
L: Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni.
A: Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu skulu heyra það og fagna. (Sálm 34:2-3)
A: Hallelúja, hallelúja!
A: Drottinn, þú hefir verið oss athvarf frá kyni til kyns (Sálm 90:1)
A: Hallelúja!

13. Sunnudagur eftir Þrenningarhátíð
Eða 14. Sunnudagur eftir Hvítasunnu
Skrúði grænn
Introitus – Inngöngusálmur
L: Texti (vers)
A: Texti (vers)
L: Texti (vers)
A: Texti (vers)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
Kollekta – Bæn dagsins
Almáttugi, eilífi Guð: Auk oss trú, von og kærleika. Og til þess að vér fáum öðlast það sem þú lofar, lát oss elska allt það sem þú hefur boðið oss. Fyrir Son þinn, Jesú Krist, Drottinn vorn, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, einn sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
Gal 3:15-22
Lúk 10:23-37
A 1981:
Sálm 25:2-14
Gal 3:15-22
Lúk 10:23-37
A endurskoðuð:
1 Mós 4:3-16a
1 Jóh 4:7-11
Lúk 10:23-37
B 1981:
Jes 58:6-12
1 Kor 13:1-7
Matt 20:20-28
B endurskoðuð:
Jes 58:6-12
1 Kor 13:1-7
Matt 5:43-48
C 1981:
5 Mós 10:17-21a
1 Kor 13:8-13
Jóh 13:34-35
C endurskoðuð:
2 Kron 28:8-15
1 Kor 13.8-13
Jóh 9:24-41
Graduale – Pallasöngur
L: Texti (vers)
A: Texti (vers)
A: Hallelúja, hallelúja!
L: Texti (vers)
A: Texti (vers)
A: Hallelúja!

x. Sunnudagur eftir Þrenningarhátíð
Eða x. Sunnudagur eftir Hvítasunnu
Skrúði grænn
Introitus – Inngöngusálmur
L: Texti (vers)
A: Texti (vers)
L: Texti (vers)
A: Texti (vers)
L: Dýrð sé Guði, Föður, Syni og Heilögum Anda,
A: svo sem var í upphafi, er enn og verða mun um aldir alda. Amen
Kollekta – Bæn dagsins
…Fyrir Son þinn, Jesú Krist, Drottinn vorn, sem með þér og Heilögum Anda lifir og ríkir, einn sannur Guð um aldir alda.
Ritningarlestrar og guðspjall
Forn:
x
x
A 1981:
x
x
x
A endurskoðuð:
x
x
x
B 1981:
x
x
x
B endurskoðuð:
x
x
x
C 1981:
x
x
x
C endurskoðuð:
x
x
x
Graduale – Pallasöngur
L: Texti (vers)
A: Texti (vers)
A: Hallelúja, hallelúja!
L: Texti (vers)
A: Texti (vers)
A: Hallelúja!