Hin játningarbundna evangelísk-lúterska kirkja hefur starfað og haldið reglulegar guðsþjónustur, biblíulestra og trúfræðslu frá árinu 2021.
Grundvöllur starfsins

Að baki JELK, er hópur Íslendinga og erlendra aðila. Við eigum sameiginlega trú á Jesú Krist, frelsara okkar, sem lét líf sitt á krossinum okkar vegna og fyrir okkur, og reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum.
Við játum að hin spámannlegu og postullegu rit gamla og nýja testamentisins séu hin eina og sanna uppspretta allra kristilegra kenninga og sú regla og viðmið sem dæmir allar kenningar og kennara trúarinnar.
Því miður er raunin hinsvegar sú að margar mismunandi kenningar gera kröfu á því að eiga uppsprettu sína í heilagri ritningu. Gegnum aldirnar hafa mörg ágreiningsefni verið rædd, og í sumum tilvikum hefur kirkjan komist að samhljóðandi niðurstöðu. Sú niðurstaða hefur þá stundum verið tjáð í svokölluðum játningarritum.
Okkar játningarrit eru fyrst hin sömu og játningarrit íslensku þjóðkirkjunnar, þ.e. Postullega trúarjátningin, Níkeujátningin, Aþanasíusarjátningin, Ágsborgarjátningin og Fræðin minni.
Flestar lútherskar kirkjur í heiminum hafa hinsvegar fjögur önnur játningarrit til viðbótar. Við játum einnig þessi rit: Játningarvörnin, Smalkaldgreinarnar, Ritgerð um yfirmátt páfans, Fræðin meiri og Samlyndisreglan.

Guðsþjónustur
Guðsþjónustan eða messan er hjarta trúariðkunar kristinna manna.
Í henni mætum við Kristi sem þjónar söfnuði sínum í predíkun orðsins og
í sakramentunum, eins og Kristur sjálfur kennir:
Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur
til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.
Mark 10:44
Við höldum messu með altarissakramenti þegar prestur er til staðar,
venjulega fyrsta eða síðasta sunnudag mánaðar (sjá nánar í dagatalinu).
Á milli er haldin ein eða tvær lesnar guðsþjónustur, þar sem leikmaður
úr söfnuðinum les helgisiði og prédikun úr prédikunarsafni.


Opnir biblíulestrar
Biblíulestrar eru haldnir að jafnaði aðra hverja viku, til skiptis á Zoom og í hemahúsi. Veturinn 2025-2026 förum við hægt og rólega yfir Lúkasarguðspjall.
Til að tengjast Zoom, er hægt að nota eftirfarandi beinan tengil:
Beinn tengill: https://us02web.zoom.us/j/89214546933..
Eða opna Zoom-forritið og setja inn eftirfarandi upplýsingar:
Meeting ID: 892 1454 6933
Passcode: jelk
Konukvöld
JELK heldur konukvöld með biblíulestri annað hvert miðvikudagskvöld. Hópurinn er í þróun og markmiðið er að skapa hlýtt og traust rými þar sem konur geta komið saman, lesið Biblíuna, rætt trú og líf og eflst í samfélagi hver við aðra.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, hafðu samband við Guðrúnu Hrönn.
Trúfræðsla

Þegar áhugi er fyrir bjóðum við upp á trúfræðslunámskeið sem fer yfir grundvallaratriði kristinnar trúar. Námskeiðið hentar fyrir þá sem eru að undirbúa sig undir skírn eða fermingu fyrir fullorðna, eða þá sem vilja verða félagsmenn JELK.
Dæmi um efni sem farið er yfir á trúfræðslunámskeiði:
- Biblían og upphaf hennar
- Um Guð, Föður, Son og Heilagan Anda
- Boðorðin tíu
- Lögmál og fagnaðarerindi
- Trúarlíf, guðrækni og bæn á heimili og í kirkju
- Skírn og altarisganga.
Athafnir og þjónusta
Auk messuhalds, biblíulestra og annars starfs sem öllum er opið, býðst félagsmönnum að nýta sér hefðbundna þjónustu safnaðarins, þar með talið skriftir, blessun hjónabands, skírn barna, fermingu, vitjun sjúkra og útför. Þeir sem vilja nýta sér þjónustu safnaðarins hafi samband við prest JELK eins tímanlega og hægt er.

Skírn
Skírnin er ekki eingöngu venjulegt vatn, heldur er hún vatnið umvafið boði Guðs og samtengt orði Guðs. Í skírninni hljótum við fyrirgefningu syndanna og fyrirheit Guðs um eilífa sáluhjálp öllum þeim sem trúa. Kristur segir í lok Markúsarguðspjalls: „Sá sem trúir og skírist, mun hólpinn verða, en sá sem trúir ekki, mun fyrirdæmdur verða“ (Mark 16:16)
Kristnir foreldrar eru hvattir til að sækjast eftir skírn fyrir börn sín, um leið og hægt er, og draga það ekki.

Ferming
Ferming er ungmennafræðsla kirkjunnar fyrir skírð börn hennar, og fylgir hún sama sniði og skírnarfræðsla. Í fermingarfræðslu JELK er skoðaður megin söguþráður Biblíunnar, grundvallar kenning kirkjunnar (eins og hún kemur fram í Fræðunum minni), trúaríf og guðrækni í kirkju og heimili.
Fermingarathöfnin sjálf er opinber játning þess sem fermist, að hann eða hún trúi á Guð, Föður, Son og Heilagan Anda. Jesús segir: „Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum.“ (Matt 10:32)

Blessun hjóna
Í hjónabandinu sameinar Guð karl og konu í eitt hold, í þeim tilgangi að gefa þeim ævilangt samfélag, og skapa líf næstu kynslóðar og hlúa að því.
Þau pör sem óska eftir hjónablessun í JELK, fá fyrst stutta leiðsögn hjá sóknarpresti. Þau þurfa að skrá hjónabandið opinberlega hjá sýslumanni, en hjónablessunin fer fram í kirkju.

Skriftir
Skriftir fela í sér tvö atriði: Annað er, að játa syndir sínar, hitt er, að taka við aflausninni eða fyrirgefningunni frá skriftaföðurnum sem af Guði sjálfum væri. Því Jesús sjálfur segir við lærisveina sína: „Ef þér fyrirgefið einhverjum syndirnar, eru þær fyrirgefnar. Ef þér synjið einhverjum fyrirgefningar, er þeim synjað.“ (Jóh 19:23)
Þeir sem vilja skrifta fyrir presti, hafi samband við til að finna hentugan tíma.

Vitjun sjúkra
Það er eðlilegt að söfnuðurinn hafi umhyggju fyrir sjúkum og þurfandi. Prestur safnaðarins getur heimsótt sjúka, og veitt sakramenti þar sem óskað er eftir því.
„Sé einhver sjúkur yðar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga safnaðarins og þeir skulu smyrja hann með olíu í nafni Drottins og biðjast fyrir yfir honum“ (Jak 5:14)

Útför
Kristileg útför er játning kirkjunnar á veruleika dauðans, sem og játning vonarinnar um upprisu dauðra á hinsta degi. Það eru aðstandendur hins látna sem ráða útförinni, en hafa ber í huga óskir og fyrirmæli sem hinn látni hefur látið í té.
Jesús segir: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?“ (Jóh 11:25-26)
Kirkjan svarar: „Já, ég trúi!“

PRESTNÁM
Kirkjan þarfnast góðra, trúaðra presta
Orðið prestur er dregið af gríska orðinu presbyteros, sem þýðir öldungur. Þessi titill var notaður þegar í frumkirkjunni, þó ekki um þá sem elstir voru í söfnuðinum, heldur um þá sem treyst var fyrir að leiða söfnuðinn, prédika og kenna orð Guðs, og deila út sakramentunum. Í dag er þörfin fyrir slíka presta jafn mikil, ef ekki meiri en nokkru sinni fyrr. Það er ástæðan fyrir því að Ad-Fontes prestnámið var stofnað.
Markmið Ad-Fontes prestnáms er að kenna og þjálfa unga menn til þess að verða trúfastir lúterskir prestar. Til þess bjóðum við upp á kennslu og starfsnám sem viðbót við hefbundið guðfræðinám. Í Ad-Fontes fylgjum við þér eftir, og hjálpum þér að vinna úr köllun þinni, til að komast að því hvort þú viljir verða prestur í lúterskum söfnuði sem kennir óskeikuleika Ritningarinnar.
Svona fer námið fram
Ad-Fontes samanstendur af fjórum meginhlutum: Vikulegum samverum, starfsnámi í söfnuði, námsferðalögum og ári í námi erlendis. Hinar vikulegu samverur hefjast með helgistund sem nemendur leiða. Því næst förum við yfir guðspjall sunnudagsins, á grísku fyrir þá sem ráða við. Því fylgir að lokum umræða um guðspjallið og/eða önnur kennsla.
Starfsnám fer fram í söfnuði sem við eigum samstarf við, sem stendur Messíaskirkjan í Osló, Ryenberg kirkja í Osló eða JELK í Reykjavík. Það er nauðsynlegt að prestar framtíðarinnar séu virkir þáttakendur í safnaðarstarfinu, og kynni sér öll störf sem sjálfboðaliðar vinna.
Reglulega er farið í námsferðalög sem auka gildi námsins. Lengsta ferðin er farin til Ísrael, þar sem nemendur kynna sér staðina þar sem biblíusögurnar áttu sér stað. Einnig er farið í styttri ferð til Wittenberg í Þýskalandi, þar sem siðbótin átti sér stað. Aðrar ferðir fara á ýmsa guðfræðiskóla í Evrópu og Ameríku.
Fjórða árið í náminu, þ.e. fyrra árið í M.A.-námi, fer fram sem skiptinám í Ameríku, við einhvern prestaskóla the Lutheran Church Missouri Synod eða the Lutheran Church Canada.
Aðlögun fyrir íslenska nemendur
Ad-Fontes hefur hingað til einungis verið starfrækt í Noregi, aðallega fyrir nemendur sem stunda guðfræðinám við Fjellhaug Internasjonale Høgskole eða Menighetsfakulteten. Ein leið er að áhugasamir íslenskir nemendur geta dvalið í Noregi yfir námstíman. Við erum einnig að skoða möguleikana á því að bjóða upp á fjarnám, í samvinnu við Luther Academy í Ríga, sem fer fram á kvöldin. Námið verður aðlagað að þörfum hvers nemanda.
Hefur þú áhuga?
Ad-Fontes hentar skírðum karlmönnum, frá háskólaaldri, sem sækjast eftir ríkara guðfræðinámi, þar sem þeir geta leitað svara við því hvort Guð kalli þá til að verða prestur. Áhugasamir hafi samband við Sakarías Ingólfsson, sakarias.ingolfsson@lkn.no
